PólitíkMarta Rós Berndsen

Þetta kvöld einkennist af pólitík. Eftir hamingjukaup í smáralindinni fór ég að kjósa upp í hlíðarskóla, kaus rétt að sjálfsögðu. Verð að kaupa mér hamingju aftur á morgun ef kosningarnar fara á versta veg, svartir háhælaðir skór í sigtinu. Ég er að horfa á Eurovision, það er nú meiri pólitíkin, svíar gefa Noregi, balkanskaginn og öll austur evrópa gefa hvort öðru innbyrðis. Ég man nú í gamla daga þegar þetta snérist um besta lagið og sönginn,  núna snýst þetta bara um pilsnasídd og öfgar. Blee

Var að klára verknámsviku á Reykjalundi og Landakoti. Það var skítsæmilegt, mikil bið og langir fyrirlestrar en svona er kannski bara læknastarfið? neiii held ekki. 

Mikið djamm í gær, er eiginlega enn að jafna mig. Læknadeild fór frá brunarústinni Pravda yfir í sukkið á Glaumbar. Gott bekkjarpartý/afmælispartý eftir það, það er æði að vera næstum því búin í prófum. 

Staðan kl. 02.35, stjórnin fallin. Stórsigur vinstri hreyfingarinnar um allt land. Ég þori varla að vona að þetta gangi allt upp? 

13. maí kl.17.06, stjórnin stendur enn á sínum völtu fótum og svörtu háhæluðu skórnir voru ekki til í mínu númeri. Lífið er ömurlegt.
 

Athugasemdir

1
gunnamaja skrifar:
og hvaða hamingjukaup voru það? ekki gera mig svona spennta stelpa!
17. maí 2007 klukkan 18:45
2
Marta skrifar:
Það skal ég sko segja þér, skyrta og stuttbuxna samfestingur. Mjög ánægulegt. Létti þungri byrði af hjarta mér að fá að bæta aðeins í fataskápinn.
17. maí 2007 klukkan 21:12

Skrifa athugasemd

Aðalvalmynd

Klukkan

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Marta Rós Berndsen
  • Staður: Reykjavík
  • Atvinna: Læknanemi