Svefnleysi!Marta Rós Berndsen
Þegar ég er í prófum á ég oft erfitt með svefn. Í fyrrinótt fór ég að velta því fyrir mér hvenær í ósköpunum ég ætti að koma því fyrir að eignast barn. Á fjórða ári byrjar verknám með skyldumætingu allan daginn og mikill lestur. Ég hef heldur engann áhuga á að seinka mér í námi né að bíða með að fara í sérnám. Þannig að ef ég myndi flýta mér þá gæti ég hugsanleg eignast barn eftir sérnám eftir svona 15 ár. En þá er ég orðin 36 ára og þá eru eggfrumurnar mínar búnar að vera í tvo áratugi í deplotene meiosu I, það getur ekki verið gott? Niðurstaða mín var því að ég þyrfti að eignast barn fyrir jól á 3 ári eða bara sleppa því. Kannski aukaatriði að mig langar ekki í barn og hef engann til að búa það til með! =) Talandi um sóun á heilbrigðum nætursvefni!Seinustu daga hef ég glósað heil ósköp upp úr hinum ýmsu bókum og hef búið mér til nokkur nýyrði. Ég er að spá í að verða Laxness rapportanna í framtíðinni, nota orð sem engin skilur.
Confusion - ringlun (finnurðu fyrir ringlun segirðu? já ég finn fyrir miklu ringli)
lethality - dræpni
learning disorders - lærierfiðleikar (einnig hægt að nota ef við krónísk lærbrot)
Soldið flott ha? Ég ætti að gerast nýyrðasmiður.
Einkenni á Down syndrome eru meðal annars: sérstakt andlitsfall, ein lína í lófa, litlar tær og fingur, muscular hypotonia og hjartagallar.
Mamma er með eina línu í lófa, litlar tær og hjartagalla! Hún er klárlega hálf-Down!
Mannabit!Marta Rós Berndsen
Helgin mín var ansi viðburðarrík miðað við yfirvofandi prófatörn. Á föstudaginn fór ég á aðalfund FL. Þar var rifist um málfræði og stafsetningu í 3 tíma en svo fengum við pítsu.Eftir þessi átök fór ég í litlu stuði á kórárshátíð. Það er alltaf stuð með kórnum og þegar ég var búin að aðlagast ölvuninni var ég komin í heljarinnar dansstuð og farin að dansa við alltof unga stráka. Þá skyndilega kemur systir mín og segir að Halla hafi verið bitin í eyrað! Hún dregur mig inn á klósett þar sem Halla er í hláturskasti með blóð lekandi í stríðum straumum milli brjóstanna. Á meðan ég reyni að þurrka blóðið og skoða sárið, voru stelpur ýmist að reyna að draga Höllu á trúnó eða að biðja um varalit að láni. Skrítið hvað áfengi brenglar dómgreind fólks! Þegar við vorum búnar að þurrka og plástra var brunað á slýsó. Þar saumaði mjög hress 5 árs stelpa eyrað á höllu saman með 7 sporum. Mega spennó!
Á laugardaginn fóru ég og Ugla á leikritið eximination sem Halla eyrnarlaskaða leikur í. Mjög skemmtileg ádeila sem fjallaði um að hafa hægðir, eitthvað fyrir mig, elliheimilisstarfsmanninn.
Nú er mega lestur framundann! Ég, cellan og boron, threesome sem getur ekki klikkað!
Læknaþættir!Marta Rós Berndsen
Ég verð að hætta að horfa á þessa læknaþætti, ég verð alveg snar rugluð í ríminu.Mig hefur grunað í nokkurn tíma að ég laðist að mönnum í hvítum búningum og ég er komin með þá kenningu að þetta sé nokkurskonar Pavlov dæmi. Ég horfi á sæta menn í hvítum búningum í læknaþáttunum, þá fæ ég fiðring í magann. Þegar ég er svo í sakleysi mínu að borða hádegismat niðrí læknagarði þá fæ ég líka fiðring í magann þegar ég sé tannlæknagaurana í hvítum búningum. Í fyrstu hélt ég að allir tannlæknanemar væru bara svona fáránlega sætir, en svo sá ég hóp af þeim á djamminu og þá eru þeir alls ekkert allir svona sætir. Þar sem hvít klæddum mönnum mun einungis fjölga í mínu nánasta umhverfi stefnir allt í tóma vitleysu. Ég þarf þess vegna að grípa í taumana strax og reyna að af-skilvirkja mig. Ég hef ekki hugmynd um hvernig ég á að fara að því nema með því að hætta að horfa á læknaþætti.
Þannig að nú er stóra spurningin, hætta að horfa á grey's eða krónískur magafiðringur for the rest of my life?
Björk!Marta Rós Berndsen
Ég fór á hreint frábæra Bjarkar/Hot Chip tónleika í gær. Björk er svo mikill snillingur, hún nær alltaf að endurskapa tónlist sína á nýjan og frumlegan hátt. Ígær tók hún bæði gömul og ný lög útsett fyrir brasssveit, píano og tölvur, það var alveg magnað. Ég hef alltaf haldið mikið upp á Björk. Ég og mamma héldum mikið upp á gling gló á sínum tíma, þá var ég fimm ára og ég man alltaf eftir því að þegar glingló byrjaði þá fórum við að hoppa í sófunum og dansa af fullum krafti. Það er svo skrítið með tónlistina hennar Bjarkar að ég get ekki sagt að ég eigi mér eitt uppáhaldslag með henni, þau eru svo mörg og svo frábær á ólíkan hátt. Í gær tók hún tildæmis Army of me og Hyper-ballad af post á alveg frábæran hátt, brasssveitin var geðveik í fyrra laginu og textinn í því seinna hefur alltaf verið í miklu uppáhaldi hjá mér. Hún tók líka Pagan Poetry snemma á tónleikunum sem ég hef mikið verið að hlusta á upp á síkastið alveg frábært lag. hún tók líka vökuró, all is full of love ofl ofl.... Sigga þú hefðir átt að vera þarna, I got emotionally high... ;) Ég held að aumingja gelgjustelpan sem stóð við hliðina á mér hafi ekki verið lítið hneyksluð yfir því hvað ég var upprifin yfir þessu öllu saman. Ég skil samt ekki afhverju það er ekki hleypt inn á tónleika eftir hæð... ég var alveg að drepast í hálsinum eftir að reyna að teygja mig og snúa til að sjá eitthvað.Ég hlakka svo til að heyra nýja diskinn ég get varla hugsað mér að bíða þangað til 7 maí.
Allavega þið stelpur út í heimi reynið að sjá þessa tónleika, þeir eru með bestu tónleikum sem ég hef farið á!
Áfram stelpur!Marta Rós Berndsen
1. árs stelpur í kanínubúning unnu læknaleikana, jippie!!! Það var svo gott á sigurvissu strákaliðin, vá ég gat varla hamið mig, þetta var sönn hamingja! Reiði 6 árs gaurinn var ekki alveg jafn hamingjusamur og ég held að gleði mín hafi farið verulega í taugarnar á honum. Allavega var hann farinn að öskra að ég ætti að halda kjafti... hehe...Dumb blondes (liðið mitt) var ekki alveg að standa sig en tjullpilsin okkar voru hinsvegar alveg frábær ;)
Ég hef stundum svo sorglega litla sjálfstjórn, var búin að ákveða að drekka ekki mikið þetta kvöld. Kom á leikana kl. 8, það var frír bjór, maður verður að fá sér frían bjór, annað er heimska. Þegar leikarnir voru búnir (og ansi mörgum fríum bjórum seinna) fór ég í eftirpartý til Gunnu Maju. Þar var mikið tjúttað og nokkrir herramenn ansi örlátir á etanólið, eiginlega einum of örlátir... kl. 4.30 sat ég enn í eldhúspartýi með screwdriverinn mér við hlið og áttaði mig á því að ég var algjörlega búin að bregðast sjálfri mér! Þetta var samt mjög skemmtilegt kvöld og mjög líklega eina djammið í páskafríinu... eða svona eiginlega frekar mikið líklega...
Coke!Marta Rós Berndsen
Ég þoli ekki coke zero auglýsingarnar, algjör karlrembuskítur, "brjóstarhaldari með ZERO smellum", " kynlíf með ZERO forleik" og "kærustu með ZERO hausverk". Ég ætti kannski að benda fávitunum sem sömdu þetta á að það er jú hægt að fá sér plastdúkku með gati, enginn brjóstarhaldari, enginn forleikur og klárlega enginn hausverkur!Varð þessvegna frekar hvumpin þegar ég sá að flokkurinn minn ætlar að nota þessa pælingu í kosningarherferð sinni. "ríkisstjórn með ZERO framsókn" er hinsvegar mun betri boðskapur en coke draslið en þessi uppsetning virkar samt fráhrindandi á mig. Æj ég veit ekki...
Ég er að fara á Bjarkartónleikanna 9 apríl. Þetta verður geðveikt, svo er hot chip líka að hita upp. Ég hlakka svo til!
Tilfinningar!Marta Rós Berndsen
Var á kvöldvakt á fimmtudaginn með kúbana, þjóðverja, rússa, kínverja og vensúelskri stelpu. Ég var eini íslendingurinn, frekar skrítið.Ég er alltaf að komast betur að því hvað við íslendingar erum ótrúlega bæld þjóð. Ég var að hlusta á kúbanska og þýska strákinn tala saman um ástarmál þýska stráksins. Kærastan var greinilega nýbúin að dömpa honum og hann var alveg á útopnunni um það hvað hann elskaði hana heitt og hvað þetta væri allt erfitt hjá honum. Svo fór kúbaninn að tala um kærustuna sína og hvað hann elskaði hana mikið og hvað það væri nú gott að vera ástfanginn! Þegar hann fór svo að spurja mig hvort ég hefði orðið ástfanginn tókst mér að hiksta fram óöruggt já áður en ég forðaði mér fram á gang. Puuff... tepran í sjálfum mér meikaði þessar aðstæður engan vegin!!
Ég veit ekki hvort mér finnst betra, útlenskir strákar sem tala um tilfinningar sínar eins og veðrið eða íslenskir strákar sem tala aldrei um þær??
Karlmenn!Marta Rós Berndsen
Mest lesna fréttin á mbl.is í gær fjallaði um mann í Frakklandi sem reif bæði augun úr eiginkonu sinni í bræðiskasti. Hún var að reyna að skilja við hann og honum líkaði það greinilega engan veginn. Hvernig er hægt að rífa augun út úr einhverjum sem þú elskar og villt ekki að fari frá þér?Ég á það til að vera neikvæð í garð karlamanna og svona fréttir eru ekki til þess að hækka álit mitt á þeim. Ég VEIT samt að allir menn eru ekki eins og þessi maður, alveg eins og allir menn eru ekki nauðgarar, kúgarar og fávitar. En ég vildi að þeir slæmu gætu verið aðeins betur merktir svo að maður þyrfti ekki að brenna sig á þeim...
Læra??Marta Rós Berndsen
Ég á að vera að læra, en ég nenni því ekki. Hver nennir að skrifa skýrslu um ræktun bandvefsfrumna?? bleÉg fór út að labba með brellu á sunnudaginn. Vorum að labba fyrir ofan MH þegar brella hleypur á harðaspretti og ég er svo mikill aumingi að ég næ ekki að halda á móti og missi hana! Það var mikill snjór og ég var þunn og þreytt í snjógalla. Sé hana hlaupa eins og raketta að veginum, reyni að hlaupa á eftir henni, öskra úr mér lungun að hún eigi að koma tilbaka. Hún stoppar og horfir á mig, ég hleyp til að reyna að ná ólinni, dett rétt hjá ólinni, næ henni ekki. Brella heldur áfram að hlaupa, ég byrja að gráta og öskra á fullu. Loks hleypur hún í áttina til mín og ég næ ólinni. Sit alveg í sjokki með tárin í augunum og blóta helvítis hundinum í sand og ösku. Henni fannst þetta hinsvegar allt ótrúlega skemmtilegt og hoppar og leikur sér fyrir framan mig. Vá hvað ég var reið!
Heyrði í fréttunum að frumvarp um að vín yrði selt í matvörubúðum hafi næstum gengið í gegn. Sem betur fer lögðust mínir menn gegn því og það varð ekkert úr því. Vá það væri fáránlegt ef áfengi væri selt í matvörubúðum hérlendis. Ég held að íslendingar myndu ekki þola að hafa áfengi svona fyrir framan nefið á sér alla daga. Við höfum ekki nógu mikla sjálfstjórn eins og til dæmis þegar íslendingar eru í útlöndum þá drekka þeir miklu miklu meira því að áfengið er svo aðgengilegt. Ég veit allavega að ef ég gæti farið hérna út á horn til þess að kaupa mér vín myndi ég mjög líklega drekka miklu meira en ég geri. Sem væri ekki sniðugt =)
Grjótagata!Marta Rós Berndsen
Við vorum að kaupa okkur hús!! Grjótagötu 11 í grjótaþorpinu, lítið sætt dúkkuhús!

Finnst ykkur það ekki fallegt?!
Það var stórslysaæfing í gær. Ég var látin dúsa í röri í hálftíma, nennti engin að taka mig uppúr því ég var bara með 3 stigs bruna. Ég var við það að missa vitið eftir að vera búin að öskra úr mér lungun og var að krókna úr kulda í þokkabót. Æfingin gekk samt mjög vel. Læknadjamm í gærkvöldi. Ég entist á hæstu hælum sem ég á (11cm!) frá 9 um kvöldið til 4 um nóttina, þá var ég hinsvegar alveg búin og labbaði á tánum heim til ömmu og afa.
Tónleikar í kvöld. Er búin að vera að hlusta á ferðalok alveg endalaust. Það er svo ótrúlega fallegt ljóð, afhverju yrkir fólk ekki svona nútildags?
- andar sem unnast, fær aldrei eilífð aðskilið -
