Svefnleysi!Marta Rós Berndsen

Þegar ég er í prófum á ég oft erfitt með svefn. Í fyrrinótt fór ég að velta því fyrir mér hvenær í ósköpunum ég ætti að koma því fyrir að eignast barn. Á fjórða ári byrjar verknám með skyldumætingu allan daginn og mikill lestur. Ég hef heldur engann áhuga á að seinka mér í námi né að bíða með að fara í sérnám. Þannig að ef ég myndi flýta mér þá gæti ég hugsanleg eignast barn eftir sérnám eftir svona 15 ár. En þá er ég orðin 36 ára og þá eru eggfrumurnar mínar búnar að vera í tvo áratugi í deplotene meiosu I, það getur ekki verið gott? Niðurstaða mín var því að ég þyrfti að eignast barn fyrir jól á 3 ári eða bara sleppa því. Kannski aukaatriði að mig langar ekki í barn og hef engann til að búa það til með! =) Talandi um sóun á heilbrigðum nætursvefni!

Seinustu daga hef ég glósað heil ósköp upp úr hinum ýmsu bókum og hef búið mér til nokkur nýyrði. Ég er að spá í að verða Laxness rapportanna í framtíðinni, nota orð sem engin skilur.
Confusion    -    ringlun   (finnurðu fyrir ringlun segirðu? já ég finn fyrir miklu ringli)
lethality      -     dræpni  
learning disorders  -   lærierfiðleikar  (einnig hægt að nota ef við krónísk lærbrot)
Soldið flott ha? Ég ætti að gerast nýyrðasmiður.

Einkenni á Down syndrome eru meðal annars: sérstakt andlitsfall, ein lína í lófa, litlar tær og fingur, muscular hypotonia og hjartagallar.
Mamma er með eina línu í lófa, litlar tær og hjartagalla! Hún er klárlega hálf-Down!


Mannabit!Marta Rós Berndsen

Helgin mín var ansi viðburðarrík miðað við yfirvofandi prófatörn. Á föstudaginn fór ég á aðalfund FL. Þar var rifist um málfræði og stafsetningu í 3 tíma en svo fengum við pítsu.
Eftir þessi átök fór ég í litlu stuði á kórárshátíð. Það er alltaf stuð með kórnum og þegar ég var búin að aðlagast ölvuninni var ég komin í heljarinnar dansstuð og farin að dansa við alltof unga stráka. Þá skyndilega kemur systir mín og segir að Halla hafi verið bitin í eyrað! Hún dregur mig inn á klósett þar sem Halla er í hláturskasti með blóð lekandi í stríðum straumum milli brjóstanna. Á meðan ég reyni að þurrka blóðið og skoða sárið, voru stelpur ýmist að reyna að draga Höllu á trúnó eða að biðja um varalit að láni. Skrítið hvað áfengi brenglar dómgreind fólks! Þegar við vorum búnar að þurrka og plástra var brunað á slýsó. Þar saumaði mjög hress 5 árs stelpa eyrað á höllu saman með 7 sporum. Mega spennó!
Á laugardaginn fóru ég og Ugla á leikritið eximination sem Halla eyrnarlaskaða leikur í. Mjög skemmtileg ádeila sem fjallaði um að hafa hægðir, eitthvað fyrir mig, elliheimilisstarfsmanninn.
Nú er mega lestur framundann! Ég, cellan og boron, threesome sem getur ekki klikkað!

Læknaþættir!Marta Rós Berndsen

Ég verð að hætta að horfa á þessa læknaþætti, ég verð alveg snar rugluð í ríminu.
Mig hefur grunað í nokkurn tíma að ég laðist að mönnum í hvítum búningum og ég er komin með þá kenningu að þetta sé nokkurskonar Pavlov dæmi. Ég horfi á sæta menn í hvítum búningum í læknaþáttunum, þá fæ ég fiðring í magann. Þegar ég er svo í sakleysi mínu að borða hádegismat niðrí læknagarði þá fæ ég líka fiðring í magann þegar ég sé tannlæknagaurana í hvítum búningum. Í fyrstu hélt ég að allir tannlæknanemar væru bara svona fáránlega sætir, en svo sá ég hóp af þeim á djamminu og þá eru þeir alls ekkert allir svona sætir. Þar sem hvít klæddum mönnum mun einungis fjölga í mínu nánasta umhverfi stefnir allt í tóma vitleysu. Ég þarf þess vegna að grípa í taumana strax og reyna að af-skilvirkja mig. Ég hef ekki hugmynd um hvernig ég á að fara að því nema með því að hætta að horfa á læknaþætti.
Þannig að nú er stóra spurningin, hætta að horfa á grey's eða krónískur magafiðringur for the rest of my life?

Björk!Marta Rós Berndsen

Ég fór á hreint frábæra Bjarkar/Hot Chip tónleika í gær. Björk er svo mikill snillingur, hún nær alltaf að endurskapa tónlist sína á nýjan og frumlegan hátt. Ígær tók hún bæði gömul og ný lög útsett fyrir brasssveit, píano og tölvur, það var alveg magnað. Ég hef alltaf haldið mikið upp á Björk. Ég og mamma héldum mikið upp á gling gló á sínum tíma, þá var ég fimm ára og ég man alltaf eftir því að þegar glingló byrjaði þá fórum við að hoppa í sófunum og dansa af fullum krafti. Það er svo skrítið með tónlistina hennar Bjarkar að ég get ekki sagt að ég eigi mér eitt uppáhaldslag með henni, þau eru svo mörg og svo frábær á ólíkan hátt. Í gær tók hún tildæmis Army of me og Hyper-ballad af post á alveg frábæran hátt, brasssveitin var geðveik í fyrra laginu og textinn í því seinna hefur alltaf verið í miklu uppáhaldi hjá mér. Hún tók líka Pagan Poetry snemma á tónleikunum sem ég hef mikið verið að hlusta á upp á síkastið alveg frábært lag. hún tók líka vökuró,  all is full of love ofl ofl.... Sigga þú hefðir átt að vera þarna, I got emotionally high... ;) Ég held að aumingja gelgjustelpan sem stóð við hliðina á mér hafi ekki verið lítið hneyksluð yfir því hvað ég var upprifin yfir þessu öllu saman. Ég skil samt ekki afhverju það er ekki hleypt inn á tónleika eftir hæð... ég var alveg að drepast í hálsinum eftir að reyna að teygja mig og snúa til að sjá eitthvað.
Ég hlakka svo til að heyra nýja diskinn ég get varla hugsað mér að bíða þangað til 7 maí.
Allavega þið stelpur út í heimi reynið að sjá þessa tónleika, þeir eru með bestu tónleikum sem ég hef farið á!

Áfram stelpur!Marta Rós Berndsen

1. árs stelpur í kanínubúning unnu læknaleikana, jippie!!! Það var svo gott á sigurvissu strákaliðin, vá ég gat varla hamið mig, þetta var sönn hamingja! Reiði 6 árs gaurinn var ekki alveg jafn hamingjusamur og ég held að gleði mín hafi farið verulega í taugarnar á honum. Allavega var hann farinn að öskra að ég ætti að halda kjafti... hehe...Dumb blondes (liðið mitt) var ekki alveg að standa sig en tjullpilsin okkar voru hinsvegar alveg frábær ;)
 Ég hef stundum svo sorglega litla sjálfstjórn, var búin að ákveða að drekka ekki mikið þetta kvöld. Kom á leikana kl. 8, það var frír bjór, maður verður að fá sér frían bjór, annað er heimska. Þegar leikarnir voru búnir (og ansi mörgum fríum bjórum seinna) fór ég í eftirpartý til Gunnu Maju. Þar var mikið tjúttað og nokkrir herramenn ansi örlátir á etanólið, eiginlega einum of örlátir... kl. 4.30 sat ég enn í eldhúspartýi með screwdriverinn mér við hlið og áttaði mig á því að ég var algjörlega búin að bregðast sjálfri mér! Þetta var samt mjög skemmtilegt kvöld og mjög líklega eina djammið í páskafríinu... eða svona eiginlega frekar mikið líklega...

Aðalvalmynd

Klukkan

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Marta Rós Berndsen
  • Staður: Reykjavík
  • Atvinna: Læknanemi