Wanderlust!Marta Rós Berndsen
Ég er að pakka þessa dagana, það er eiginlega svolítið leiðinlegt að komast að því hvað ég er í raun óskipulögð. Herbergið mitt lítur oftast ágætlega út en ekki er allt sem sýnist. Hvað er stúdentshúfan mín til dæmis búin að vera að gera í nærfataskúffunni minni síðasta hálfa árið? Þráðlausi heimasíminn sem var búinn að vera týndur í fleiri mánuði fannst læstur í skrifborðsskápnum mínum. Ég er alltaf að komast að fleiri og fleiri leyndarmálum sem leynast í fataskápnum mínum, silvurlitaðir háhælaðir skór sem ég keypti fyrir 3 árum og hef aldrei notað fyrr en í gær. Sum leyndarmál eru ánægjuleg, önnur ekki.
Þorgerður fékk mig til þess að vera með heilsuhorn á vorvítamín í gær. Þar mældi ég blóðþrýstinginn á allnokkrum vinum mínum og öðrum gestum. Það sem kom mér á óvart var að karlmenn/piltar voru nánast alltaf með hærri þrýsting og púls en konurnar/stúlkurnar. Nú kann ég ekki mikið um blóðþrýsting en ég fór að velta því fyrir mér hvort karlmenn væru almennt með hærri þrýsting eða hvort ég hafi bara verið í of flegnum kjól?
Undanfarið hef ég ekki getað sofnað án þess að hlusta á wanderlust og dull flame of desire, volta er nýji elskhuginn minn.
PólitíkMarta Rós Berndsen
Þetta kvöld einkennist af pólitík. Eftir hamingjukaup í smáralindinni fór ég að kjósa upp í hlíðarskóla, kaus rétt að sjálfsögðu. Verð að kaupa mér hamingju aftur á morgun ef kosningarnar fara á versta veg, svartir háhælaðir skór í sigtinu. Ég er að horfa á Eurovision, það er nú meiri pólitíkin, svíar gefa Noregi, balkanskaginn og öll austur evrópa gefa hvort öðru innbyrðis. Ég man nú í gamla daga þegar þetta snérist um besta lagið og sönginn, núna snýst þetta bara um pilsnasídd og öfgar. BleeVar að klára verknámsviku á Reykjalundi og Landakoti. Það var skítsæmilegt, mikil bið og langir fyrirlestrar en svona er kannski bara læknastarfið? neiii held ekki.
Mikið djamm í gær, er eiginlega enn að jafna mig. Læknadeild fór frá brunarústinni Pravda yfir í sukkið á Glaumbar. Gott bekkjarpartý/afmælispartý eftir það, það er æði að vera næstum því búin í prófum.
Staðan kl. 02.35, stjórnin fallin. Stórsigur vinstri hreyfingarinnar um allt land. Ég þori varla að vona að þetta gangi allt upp?
13. maí kl.17.06, stjórnin stendur enn á sínum völtu fótum og svörtu háhæluðu skórnir voru ekki til í mínu númeri. Lífið er ömurlegt.
Próflok!Marta Rós Berndsen
Ég er búin í prófum! Tvö helvísk próf, þar sem allt sem hugsast gat fór úrskeiðist. Ég kom út skjálfandi með svima eftir þriggja tíma próftíma í fyrra prófinu þar sem ég fattaði 10 mín áður en tíminn var búinn að ég hefði á einhvern óskiljanlegan hátt ruglast á hlutverki MT og IF. Ég náði samt vonandi að laga það en prófbókin mín var eins og eftir kjarnorkusprengju. Það var villa í prentun í seinna prófinu þannig að það var allt í klúðri og frekar mikið bögg.Eftir prófið í gær fór ég með bekknum í bústað. Þar drekktum við sorgum okkar og við stelpurnar fórum í vindbað. ;)
Ég er svo fáránlega mikil grenjuskjóða. Ég græt samt ekkert mikið yfir raunverulegum hlutum en óstjórnlega mikið yfir bíomyndum og sjónvarpsþáttum. Var að horfa á tvöfaldan Grey's og ég var að reyna að passa mig að gráta ekki mikið því ég held að systur minni finnist það óþægilegt. Þannig að ég grét bara smá í lokinn en svo þegar þátturinn var búinn og við vorum að bursta tennurnar þá byrjaði ég að hágráta!! Ég gat bara ekki haldið því inni, systir mín, brella og mammma héldu að ég væri að missa vitið en ég sat bara á baðkarsbrúninni og grét og grét. Þetta var næstum því eins slæmt og þegar ég fór á KingKong með þáverandi kærastanum mínum og vini hans. Þá grét ég hálfa myndinina með ekka og fötin mín voru öll útí hori og slefi þegar við komum út. Útaf apa sem var ekki einu sinni raunverulegur, ég er nú ekki alveg í lagi.
